Tölvuviðgerð sem skilar raunverulegum árangri
Við greinum vandann, hreinsum tölvuna, aukum hraðann og útskýrum allt á einfaldan hátt. Skýr þjónusta, snyrtileg vinnubrögð og verð sem þú sérð fyrirfram.
Allsherjar yfirferð & vírushreinsun
Allsherjar yfirferð og vírushreinsun hjá Tölvuviðgerð.is á aðeins 5.990 kr. Gildir eingöngu fyrir tölvur með Windows stýrikerfi.
- Hreinsun á vírusum og óæskilegum forritum
- Almenn yfirferð á ástandi tölvunnar
- Ráðleggingar um næstu skref ef meira þarf
Fagleg þjónusta fyrir tölvuna þína
Hvort sem tölvan er hæg, sýkt, hrynur eða þarf uppfærslu, þá finnum við lausn sem meikar sens.
Vírushreinsun
Við hreinsum vírusa, spilliforrit og óæskileg forrit og tryggjum að tölvan verði öruggari.
Hæg tölva
Við finnum hvað hægir á tölvunni og látum hana ganga hraðar með réttri uppsetningu og uppfærslum.
SSD / RAM uppfærslur
Uppfærslur sem geta breytt gamalli tölvu í miklu snarpra tæki til daglegrar notkunar.
Greining & bilanaleit
Við greinum vandamálið og gefum skýrt kostnaðarmat áður en nokkuð er gert.
Gagnaendurheimt
Þegar myndir, skjöl eða mikilvæg gögn virðast glötuð metum við möguleika á endurheimt.
Þjónusta fyrir fyrirtæki
Stuðningur, uppfærslur og tölvuviðhald fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
Ítarleg verðskrá
Hér er skýr verðskrá fyrir algenga þjónustu. Endanlegt verð getur farið eftir ástandi tölvunnar, flækjustigi og varahlutum þar sem það á við.
Greining og almenn þjónusta
Uppfærslur og hraðabætur
Viðgerðir og sérverk
Aukagjöld og þjónustusvæði
Athugið
Verðskráin miðast við algeng verkefni. Ef um sérhæfðari viðgerð, sérstaka varahluti eða óvenjulega bilanagreiningu er að ræða, þá er það metið sérstaklega. Þú færð alltaf upplýsingar áður en lengra er haldið.
Við reynum ekki bara að laga tölvuna — við viljum líka gera ferlið einfalt
Flestir vilja vita hvað er að, hvað það kostar og hvort það borgi sig að laga tölvuna. Við leggjum áherslu á skýrar upplýsingar, snyrtilega vinnu og raunhæfar lausnir.
Tölvuviðgerðir með skýrum fókus á gæði og einfaldleika
Við hjálpum með vírusa, hægar tölvur, uppfærslur, bilanir og almenna tölvuþjónustu. Þjónustan er byggð á einfaldleika, áreiðanleika og heiðarlegri ráðgjöf.
Tölvuviðgerðir, vírushreinsun, uppfærslur og skýr verðskrá
Tölvuviðgerð.is býður upp á faglegar tölvuviðgerðir, vírushreinsun, uppfærslur á SSD og RAM, bilanagreiningu, almennan hugbúnaðarstuðning og gagnaendurheimt. Ef tölvan er hæg, frýs, sýnir villur eða virkar einfaldlega ekki eins og hún á að gera, þá skoðum við málið og finnum réttu lausnina.
Við vinnum bæði fyrir einstaklinga og fyrirtæki og leggjum áherslu á góða þjónustu, skýrar upplýsingar og sanngjarna verðlagningu. Sérstakt tilboð er í boði á allsherjar yfirferð og vírushreinsun fyrir Windows tölvur á aðeins 5.990 kr. Einnig bjóðum við upp á sækja / skila þjónustu á Höfuðborgarsvæðinu fyrir 3.000 kr.
Það sem fólk spyr oftast um
Hvað tekur vírushreinsun langan tíma?
Það fer eftir ástandi tölvunnar, en í mörgum tilfellum er hægt að ljúka verkinu innan 1–2 daga.
Gildir tilboðið fyrir Mac?
Nei, tilboðið gildir eingöngu fyrir tölvur með Windows stýrikerfi.
Fæ ég verð áður en viðgerð hefst?
Já, við förum yfir stöðuna og gefum kostnaðarmat áður en unnið er áfram.
Er hægt að sækja og skila tölvu?
Já, sækja / skila á Höfuðborgarsvæðinu kostar 3.000 kr.
Segðu okkur hvað er að tölvunni
Lýstu vandamálinu stuttlega og við svörum eins fljótt og hægt er. Þú getur líka nefnt hvort þú viljir nýta tilboðið í allsherjar yfirferð og vírushreinsun.